Skip to content
Narrow screen resolution Wide screen resolution Auto adjust screen size Increase font size Decrease font size Default font size blue color

Ungmennasamband Borgarfjarðar

Heim
Borgfirðingar að gera það gott PDF Prenta Rafpóstur
Wednesday, 09 May 2012

  Ellefu Borgfirðingar kepptu í Víðavangshlaupi Íslands sem fram fór í Grafarvogi þann 6. maí í blíðskaparveðri. Keppnin var mjög skemmtileg og var keppt bæði í sveitakeppni og einstaklingskeppni en alls voru 135 keppendur skráðir til leiks. Krakkarnir úr Borgarfirði stóðu sig með prýði og þar eru á ferð mjög efnilegir hlaparar sem gæðu náð enn lengra ef þeir verða duglegir að æfa. Sveit 13 ára stráka varð Íslandsmeistari í sínum flokki, en sveitina skipuðu: Helgi Guðjónsson, Ragnar Magni Sigurjónsson, Kristleifur Darri Kolbeinsson og Sveinbjörn Sigurðsson. Önnur úrslit má sjá hér fyrir neðan.

 

Lesa meira...
 
Göngur sumarsins hefjast PDF Prenta Rafpóstur
Monday, 07 May 2012

Hefðbundnar UMSB göngur verða á fimmtudögum nú í sumar og er lagt af stað frá upphafsstað göngu kl 20:00. Í ár er markmiðið að ganga á sex fjöll á sambandssvæðinu. Þetta eru mjög breytilegar göngur og vonandi að það finni allir eitthvað við sitt hæfi. Hver ganga getur tekið allt frá einum og hálfum tíma upp í fjóra til fimm tíma. Við hefjum leikinn í maí.

Fyrsta ganga sumarsins:  

·         10. maí – Gengið verður á fjall ársins, Foxufell í Hítardal. Gönguleiðin að fellinu er um 4,5 km. Mæting við Hítarvatn.
Þeir sem vilja geta sameinast í bíla við íþróttahúsið í Borgarnesi kl 19:10.

 
Afmælishátíð Ungmennasambands Borgarfjarðar PDF Prenta Rafpóstur
Thursday, 03 May 2012

Ungmennasambandið fagnaði 100 ára afmæli sínu fimmtudaginn 26. apríl. haldin var vegleg veisla og var margt gesta eða um 200 mans. Ásdís Helga Bjarnadóttir fyrrverandi formaður UMSB sá um veislustjórn og flutti Þórir Jónsson, annar fyrrverandi, formaður hátíðarræðu. Komu margir góðir gestir í pontu og fluttu sambandinu kveðju sína en einnig var sambandinu gefið margar fallegar gjafir; þ.á.m. glæsilega myndavél, skeiðklukkur, skákbikara, blóm og peningagjafir til tækjakaupa. Einnig voru við þetta tækifæri veittar ýmsar viðurkennignar. Veitti UMFÍ þeim Agnesi Guðmundsdóttur Umf. Stafholtstungum og Eyjólfi Hjálmssyni Umf. Íslending starfsmerki sitt fyrir vel unnin störf í þágu Ungmennafélags Íslands. Einnig veitti ÍSÍ Rósu Marínósdóttur gullmerki Íþrótta- og ólympíusambandsins fyrir vel unnin störf og að lokum veitti UMSB, Evu Karen Þórðardóttur sérstaka viðurkenningu fyrir ómetanlegt starf í þágu dansíþróttarinnar í Borgarfirði.

Stjórn, fyrir hönd sambandsins, þakkar kærlega fyrir allar hlýjar kveðjur og gjafir. Myndir frá afmælinu má sjá í myndasafni hérna 

 
Sambandsþing 2012 framhald PDF Prenta Rafpóstur
Thursday, 12 April 2012

Sambandsþing UMSB var haldið í Hjálmakletti í gærkvöldi. Þingið var starfssamt og mörg mál rædd en því miður var ekki hægt að ljúka þingstörfum þar sem ekki hefur neinn gefið kost á sér sem sambandsstjóra. Sambandsþingi var því frestað til þriðjudagsins 17 apríl nk. þá hefst fundur kl. 20.00 en fundarstaður verður auglýstur síðar.

 

 
Sambandsþingi frestað PDF Prenta Rafpóstur
Tuesday, 27 March 2012

Vegna gríðarlega mikilvægs oddaleiks milli Skallagríms og ÍA nú í kvöld (þriðjudaginn 26. mars) hefur sambandsþingi UMSB sem halda átti verið frestað. Þing hefur hinsvegar verið boðað þann 11. apríl í staðin, í Menntaskóla Borgarfjarðar eins og áður kl. 18.00 Dagskrá er óbreytt.

Hvetjum auðvitað alla til að mæta í Íþróttamiðstöðina í Borgarnesi og hvetja Skallagrímsmenn til dáða en leikurinn byrjar kl. 19.15 

 
<< Byrja < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>

Úrslit 1 - 9 af 145