Skip to content
Narrow screen resolution Wide screen resolution Auto adjust screen size Increase font size Decrease font size Default font size blue color

Ungmennasamband Borgarfjarðar

Heim arrow UML
Unglingalandsmót 2010 PDF Prenta Rafpóstur
Monday, 14 April 2008

Unglingalandsmót UMFÍ verður haldið í Borgarnesi um verslunarmannahelgina. Ungmennasamband Borgarfjarðar er mótshaldari þessa Unglingalandsmóts en UMSB var stofnað árið 1912 og innan vébanda þess eru 12 aðildarfélög. Unglingalandsmótin eru vímuefnalaus íþrótta- og fjölskylduhátíð og frábær kostur fyrir alla þá sem velja heilbrigt og vímuefnalaust umhverfi samhliða því að taka þátt í fjölbreyttri íþróttakeppni.


Allir á aldrinum 11 – 18 ára geta tekið þátt í íþróttakeppni á Unglingalandsmótinu. Keppendur greiða eitt mótsgjald, kr. 6.000.- og fá með því þátttökurétt í öllum keppnisgreinum. Búseta og aðild að íþróttafélagi skiptir engu máli, allir hafa jafnan rétt til keppni á mótinu.

LESA VEL!!!   

UMSB Búningur 
Mælst er  til að keppendur UMSB klæðist UMSB galla á Unglingalandsmótinu og mæti sérstaklega í þeim í verðlaunaafhendingu og skrúðgöngu.,  Þeir eru til sölu á skrifstofu UMSB og kostar gallinn 6000 kr.  Þeir sem hafa áhuga á að kaupa galla vinsamlegast hafið samband sem fyrst við Kristján í síma 823-5764

Dagskrá
Í boði verður fjölbreytt afþreying fyrir alla meðlimi fjölskyldunnar og ættu allir að finna eitthvað við sitt hæfi. Íþróttakeppnin hefst á föstudagsmorgni og lýkur á sunnudegi. Setningarathöfn mótsins er á föstudagskvöldið en boðið verður upp á dagskrá öll kvöldin þar sem hljómsveitir og skemmtikraftar halda uppi fjörinu.

Stórt sameiginlegt  tjald UMSB/UDN/HSH verður á svæðinu þar sem fjölskyldur geta haft afþrep. Ekki verður hægt að fá rafmagn frá því tjaldi.   

Nánari upplýsingar um ULM í Borgarnesi er hægt að nálgast á www.ulm.is