Skip to content
Narrow screen resolution Wide screen resolution Auto adjust screen size Increase font size Decrease font size Default font size blue color

Ungmennasamband Borgarfjarđar

Heim arrow Lög og reglugerđir
Lög og reglugerđir PDF Prenta Rafpóstur
Tuesday, 15 April 2008

Lög Ungmennasambands Borgarfjarðar

Samþykkt á 78. þingi UMSB 18. mars 2000


1. grein
Sambandið heitir Ungmennasamband Borgarfjarðar, skammstafað UMSB. Starfsvæði þess er Mýra- og Borgarfjarðasýsla.

2. grein
Heimili sambandsins og varnarþing er að Borgarbraut 61, 310 Borgarnesi. Merki sambandsins er blár skjöldur með hvítri umgjörð. Á skildi þessum er skammstöfun sambandsins, UMSB, ásamt fjaðurpenna og laxi. Reikningsár skal vera almanaksárið.

3. grein
Rétt til þátttöku í sambandinu hafa þau ungmenna- og íþróttafélög, sem starfa eða munu starfa á sambandssvæðinu, enda séu lög þeirra og starfsemi í samræmi við lög UMSB, UMFÍ og ÍSÍ.

4. grein
Hlutverk Ungmennasambandsins er:

a) Að stjórna sameiginlegum íþróttamálum og öðrum verkefnum aðildarfélaga sambandsins, og vera fulltrúi ÍSÍ og UMFÍ.

b) Að annast samstarf um íþróttamál við sveitar- og bæjarstjórnir og aðra opinbera aðila innan héraðsins.

c) Að varðveita og skipta milli félaganna því fé, sem til þess hefur verið veitt.

d) Að aðstoða við skipulag, undirbúning og framkvæmd íþróttamóta í héraði.

e) Að hafa frumkvæði um eflingu íþróttastarfs innan héraðsins.

f) Að staðfesta lög aðildarfélaga.

g) Að fylgjast með því að starfsemi aðildarfélaga fari fram skv. gildandi lögum þeirra og íþróttahreyfingarinnar í heild. Vanræki aðildarfélag að halda aðalfundi á tilsettum tíma, skal stjórn UMSB, ef þörf krefur, boða til fundarins og sjá um framkvæmd hans.

5. grein
Sambandsþing skal haldið árlega, eigi síðar en 15. mars en þó er stjórn heimilt, að fengnu samþykki formannafundar, að fresta þingi ef sérstakar ástæður liggja fyrir. Sambandsstjórn ákveður þingstað og boðar til þings. Er það lögmætt, sé það boðað með minnst eins mánaðar fyrirvara. Fundarboð, dagskrá og tillögur um breytingar á lögum sambandsins skal senda aðildarfélögum eigi síðar en 14 dögum fyrir þing. Sambandsstjóri skal enn fremur boða til aukaþings telji hann þess þörf eða ef tveir þriðju sambandsaðila bera fram ósk um slíkt.

6.grein
Hvert sambandsfélag hefur rétt ti að senda fulltrúa á sambandsþing. Fulltrúafjöldinn miðast við einn fulltrúa á hverja byrjaðða 100 skattskylda félaga miða vð síðustu áramót upp að 1000 félögum en einn fulltrúa fyrir hverja 200 félaga þar fyrir ofan. Formenn (eða staðgenglar þeirra) eru sjálfkjörnir á þing.

 

Atkvæðisrétt á sambandsþing hafa einungis kjörnir fulltrúar aðildarfélaganna. Einfaldur meirihluti ræður úrslitum atkvæðagreiðsla nema um lagabreytingu sé að ræða.


7. grein
Dagskrá sambandsþings:

  Fundarsetning
  Kosning kjörbréfanefndar
  Kosning fundarstjóra
  Kosning ritara
  Kosning starfsnefnda þingsins
  Skýrsla stjórnar og reikningar
  Fjárhasáætlun lögð fram
  Umræður um skýrslu stjórnar og reikninga
  Ávörp gesta
  Lagðar fram tillögur og lagabreytingar
  Lagðar fram aðrar tillögur
  Þinghlé – Nefndir starfa
  Lagðar fram tillögur starfsnefnda þingsins til umræðu og atkvæðagreiðslu
  Kosning stjórnar
  Kosning á Íþróttaþing ÍSÍ
  Önnur mál
  Þinggerð – Þingslit.

Þó getur þingið falið sambandstjórn að annast tilnefndingu þessara starfskrafta á sértökum stjórnarfundi. Uppstillingarnefnd stillir upp mönnum til stjórnarkjörs samkvæmt reglugerð þar um.

8. grein
Sambandsstjórn skipa fimm menn: Sambandsstjóri, varasambandsstjóri, ritari, gjaldkeri, og meðstjórnandi. Sambandsstjóri skal kjörinn til eins árs í senn. Kjörtímabil annarra stjórnarmanna skal vera tvö ár, þannig að annað árið skulu kjörnir varasambandsstjóri og gjaldkeri og varamenn þeirra, en hitt árið ritari og meðstjórnandi og varamenn þeirra.
Gefi stjórnarmaður sem sitja skyldi áfram eftir lögum þessum kost á sér í starf sambandsstjóra eða annað starf innan stjórnar, er heimilt að kjósa hann til þess og þá annan mann í hans stað fyrir þann tíma sem eftir er af kjörtímabilinu. Ennfremur skulu árlega kjörnir tveir skoðendur og tveir til vara. Stjórn er heimilt að ráða framkvæmdastjóra til starfa fyrir sambandið. Aðalstjórn er heimilt að kjósa úr sínum hópi til eins árs í senn tvo menn er skipa framkvæmdastjórn ásamt framkvæmdastjóra.

9. grein
Sambandsstjórn hefur á hendi stjórn sameiginlegra mála sambandsins milli þinga, eftir þeim reglum og innan þeirra takmarkana, sem lög og þing samþykktir setja. Hún veitir mótttöku öllu því fé, er sambandinu áskotnast, ávaxtar sjóði þess og fer með þá samkvæmt fjárhagsáætlun þeirri er þingið hefur samþykkt. Kaup og sala á fasteignum sambandsins er bundin samþykktum sambandsþings.

10. grein
Sambandsstjórn hefur fundi svo oft sem þurfa þykir. Þannig skal boða alla stjórnarmenn eða varamenn í þeirra stað, geti aðalmenn ekki mætt. Þá skal stjórnin boða formenn allra sambandsfélaganna til fudar eigi sjaldnar en tvisvar á ári, ásamt formönnum einstakra nefnda, þegar ástæða þykir til. Skilt er formönnum að senda fulltrúa í sinn stað, geti þeir ekki mætt.
Atkvæðisrétt á formannafundum skulu hafa: Sambandsstjórn og fulltrúar félaga, en nefndarmenn aðeins ef um sérmálefni þeirra er að ræða. Aldrei fer þó einn og sami maður með nema eitt atkvæði.

11. grein
Umsókn um inngöngu í sambandið skulu sendar til stjórnar þess ásamt eintaki af lögum viðkomandi félags. Umsókn um aðild að sambandinu skulu hafa borist eigi síðar en 20 dögum fyrir sambandsþing. Sambandsþing úrskurðar um inntöku, enda hafi umsókn borist eigi síðar en 20 dögum fyrir sambandsþing. Úrsögn skal tilkynna skriflega til sambandsstjórnar. Sambandsstjórn staðfestir einungis úrsögn ef viðkomandi aðildarfélag er skuldlaust við sambandið. Þeim félögum sem ekki hafa sent skatt eða skýrslu í tvö ár samfleitt, má víkja úr sambandinu. Ennfremur þeim félögum, sem að öðru leyti gerast brotleg gagnvart lögum þess. Félagi sem vikið hefur verið úr UMSB er því aðeins heimil innganga aftur að skuldir þess séu greiddar.

12. grein
Sambandsþing skal ár hvert ákveða gjöld sambandsfélaganna til sambandsins, og skal greiða þau til gjaldkera eigi síðar en 15. júní. Eindagi gjaldanna er 15. júlí. Eftir eindaga er heimilt að skuldjafna innistæðu viðkomandi félags til USMB.

13. grein
Við hver áramót skulu stjórnir sambandsfélaganna semja skýrslu um hag sinn og starfsemi, samkvæmt fyrirmælum UMFÍ og ÍSÍ. Skýrslu þessari skal skila eigi síðar en 1. febrúar.

14. grein
Rísi ágreiningur um lög og reglur sambandsins, útskurðar stjórnin um það, en þeirri niðurstöðu má skjóta til næsta sambandsþings.

15. grein
Til breytingar á lögum þessum þarf 2/3 hluta atkvæða mættra fulltrúa á lögmætu sambandsþingi.

16. grein
Lög þessi öðlast þegar gildi og eru með þeim úr gildi numin öll eldri lög sambandsins.

 

Lottóreglur UMSB

1. Lottótekjur skiptast þannig:
a) 5 % í Afreksmannasjóð UMSB
b) 15 % til UMSB
c) 30 % til sérstakra verkefna samkvæmt ákvörðun þings UMSB
d) 50 % til aðildarfélaga UMSB

2. Skipting milli félaga:
a) 10 % jafnt á milli allra aðildarfélaga
b) 10 % eftir fjölda mættra fulltrúa á þing UMSB
c) 80 % eftir fjölda félaga.

3. Forsendur skiptingar á milli félaga:
a) Félagið verður að skila kennsluskýrslum til UMFÍ og ÍSÍ til að fá úthlutun. Síðasti skiladagur er 15. apríl.
b) Fjórir útborgunardagar eru á hverju ári: 1. maí, 1. ágúst, 1. nóvember, og 1. febrúar. Á hverjum úthlutunardegi verður öllu því lottófé úthlutað sem borist hefur frá síðustu úthlutun, en UMSB skal þó halda þeim vöxtum sem safnast hafa á lóttófé milli úthlutunardaga.
c) Um skerðingu ef félagið sendir ekki fulltrúa á formannafund UMSB: Sendi félag ekki fulltrúa á formannafund UMSB skerðist úthlutunarfé þess félags um 25 % við næstu úthlutun, en hefur síðan ekki áhrif á aðra úthlutunardaga á eftir.
Skerðingin renni til UMSB.

 

Afreksmannasjóður UMSB

 Reglugerð Sjóðsins

1.grein
Sjóðurinn heitir Afreksmannasjóður UMSB og er formlega stofnaður á 86. sambandsþingi UMSB 13.mars 2008 í tilefni af framlagi kr. 500.000 frá Orkuveitu Reykjavíkur sem kemur til viðbótar framlagi UMSB.

2. grein
Tilgangur sjóðsins er að styrkja afreksfólk, einstaklinga eða hópa innan UMSB sem náð hafa framúrskarandi árangri í íþrótt sinni.

 3. grein
Eingöngu félagar innan aðildarfélaga UMSB geta fengið styrki úr sjóðnum.

4. grein
Stjórn sjóðsins annast alla úthlutun úr sjóðnum. Hún er skipuð þremur mönnum sem kosnir eru á sambandsþingi UMSB til tveggja ára. Stjórnin skiptir með sér verkum. Þá skal á hverju sambandsþingi UMSB kjósa einn varamann sem stjórninni er heimilt að kalla til ef fjallað er um mál sem tengjast einhverjum stjórnarmönnum persónulega. Skal þá sá stjórnarmaður víkja fundi.

5. grein
Vörslu sjóðsins og reikningshald annast gjaldkeri UMSB.
Endurskoðendur UMSB eru jafnframt endurskoðendur reikninga sjóðsins

6. grein
Tekjur sjóðsins eru:
a)
Ákveðið hlutfall af óskiptum lottótekjum UMSB, skv. reglugerð sambandsins.
b) Frjáls framlög og söfnunarfé.
c) Tekjur af ávöxtun sjóðsins

7. grein
Um styrkveitingar:
1.) Veita má styrk úr sjóðnum án umsóknar vegna mjög góðrar frammistöðu í eftirtöldum alþjóðamótum:
a) Heimsmeistaramótum
b) Evrópumeistaramótum
c) Norðurlandameistaramótum
d) Ólympíuleikum
2.) Heimilt er að veita styrk úr sjóðnum ef viðkomandi hefur verið valinn í landslið.
3.) Ennfremur er heimilt að veita styrk til þeirra sem standa framarlega í sinni grein miðað við styrkleikaflokkun sérsambanda (sé hún til).
4.) Einnig getur sjóðsstjórn veitt styrki til einstaklinga eða hópa þó ekki liggi fyrir skrifleg umsókn viðkomandi, telji hún það samrýmast reglum sjóðsins.

8. grein
Styrkupphæðir taka mið af fjármagnsgetu sjóðsins hverju sinni. Úthlutanir skulu þó ekki fara yfir 75% fjármagni hvers árs

9. grein
Úthlutun úr sjóðnum fer fram í mars ár hvert og þurfa umsóknir að berast fyrir 1. þess mánaðar, undirritaðar af formanni viðkomandi aðildarfélags, þar sem fram komi greinargerð um afrek eistaklingsins sem sótt er fyrir.

Sjóðsstjórn er þó heimilt að úthluta á öðrum tíma en að framan greinir ef sérstaklega stendur á.

 

 

Samþykkt á 86. sambabdsþingi UMSB 13.mars 2008 á Hvanneyri.