Skip to content
Narrow screen resolution Wide screen resolution Auto adjust screen size Increase font size Decrease font size Default font size blue color

Ungmennasamband Borgarfjarđar

Heim
7 Unglingalandsmótsmeistarar PDF Prenta Rafpóstur
Saturday, 18 August 2007

Sigmar Aron Ómarsson

31 keppendur frá UMSB tóku þátt í Unglingalandsmóti sem fór fram á Höfn í Hornafirði núna um verslunarmannahelgina. Mótið fór vel fram og skemmtu keppendur og foreldrar sig vel alla helgina. Helstu úrslit urðu þau að í frjálsum íþróttum varð Sigmar Aron Ómarsson í 1. sæti í spjótkasti með 40,87m í flokki 13 ára. Arnar Hrafn Snorrason jafnaði Borgarfjarðarmet í hástökki, stökk 1,85m og lenti í öðru sæti í flokki 15 –16 ára. Í sundi varð Þórkatla Dagný Þórarinsdóttir meistari í 50m bringusundi á tímanum 38,58 sek í flokki 13-14 ára. Þórkatla og Ísfold Grétarsdóttir voru svo í sigurliði í 4x25m skriðsundi og 4x25 fjórsundi í flokki 13-14 ára. Agnar Kristinsson var í sigurliði í 4x25 skriðsundi í flokki 11-12 ára.  Í skák varð Tinna Kristín Finnbogadóttir meistari í flokki 15-16 ára. Hulda Rún Finnbogadóttir varð meistari í flokki 11-12 ára og Auður Eiðsdóttir varð meistari í flokki 13-14 ára.  UMSB var einnig með lið í körfubolta og fótbolta.  13-14 ára strákar lentu í 3. sæti í sínum riðli í körfubolta og í 4. sæti í sínum riðli í fótbolta.  Stelpurnar í flokki 15-16 ára lentu í 3. sæti í sínum riðli í körfubolta og 2. sæi í sínum riðli í fótboltanum.  Aðrir keppendur UMSB stóðu sig frábærlega og voru til sóma í alla staði fyrir UMSB.  Öll úrslit eru að finna á vef ulm.is

 

 

Síđast uppfćrt ( Wednesday, 22 August 2007 )
 
< Fyrri   Nćsti >