Skip to content
Narrow screen resolution Wide screen resolution Auto adjust screen size Increase font size Decrease font size Default font size blue color

Ungmennasamband Borgarfjarđar

UMSB á Facebook
Wednesday, 07 July 2010

UMSB er komið á facebook og hvet ég alla til að vera vinir okkar. við setjum inn fréttir þar og ýmsa minnispunkta

 

 

 
Frjálsíţróttabúđir UMSB
Tuesday, 06 July 2010

Frjálsíþróttabúðir UMSB verða á Skallagrímsvelli 10-11 júlí. Þessar æfingar eru ætlaðar fyrir krakka á unglingalandsmótsaldrinum 11-18 ára.
Laugardaginn verða tvær æfingar klukkan 10:00-11:30 og svo verður seinni æfingin klukkan 14:00-15:30. á Sunnudaginn verður mót klukkan 14:00-16:00 og geta þá krakkarnir keppt í því sem þau vilja. Þjálfarar verða Unnur og Rakel. Gott væri að þið kæmuð með vasapening fyrir hádegismat og sundi.


Minni einnig á samæfingar UMSB sem eru á Þriðjudögum og Fimmtudögum klukkan 20:00.


 

 

 
Frjálsíţróttaskóli UMFÍ
Thursday, 01 July 2010

Frjálsíþróttaskóli UMFÍ fór af stað í síðustu viku en alls verður skólinn starfræktur átta stöðum um landið í sumar. 

Þetta er í þriðja sumarið í röð sem skólinn starfar en mjög góð aðsókn var á námskeiðunum sem hófust í síðustu viku á Laugum, Egilsstöðum og í Borgarnesi.

12.-16. júlí verður skólinn á Akureyri og þann 19. júlí hefjast námskeið á Laugarvatni, Sauðárkróki, Mosfellsbæ og Hornafirði.

Frjálsíþróttaskólinn er spennandi tækifæri fyrir ungmenni sem vilja reyna sig í fyrsta sinn eða efla sig í frjálsum íþróttum.  Áhugasamir velja þann stað sem hentar hverjum og einum og taka um leið þátt í góðum félagsskap.

Auk íþróttaæfinga verða líflegar kvöldvökur, varðeldur, gönguferðir og ýmsar óvæntar uppákomur. Mest aðskókn er í Borgarnesi en 53 krakkar sóttu skólann þar sem er fjölgun frá árinu áður.

 

 

 

Myndir frá Borgarnesi

 
<< Byrja < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Nćsta > Endir >>

Úrslit 17 - 20 af 98