Skip to content
Narrow screen resolution Wide screen resolution Auto adjust screen size Increase font size Decrease font size Default font size blue color

Ungmennasamband Borgarfjarðar

Göngur UMSB sumarið 2010
Tuesday, 08 June 2010

 

Göngur UMSB sumarið 2010

 

Í  sumar verður gengið að ýmsum fossum í héraðinu, sérstaklega þeim sem ekki eru  í alfaraleið. Göngurnar verða flestar að venju á fimmtudagskvöldum. Auk þess verður gengið á Þyril  og Varmalækjarmúla sem eru fjöll UMSB í verkefni UMFÍ, “fjölskyldan á fjallið” og verða gestabækur þar í sumar.

Föstudaginn 11. júní,  kl. 19.00 verður farið með gestabók á Þyril í Hvalfirði. Mæting fyrir ofan tanka Olíudreifingar í Litlasandsdal (fyrir ofan hvalstöðina).

Miðvikudaginn 23.júní. kl.20.00.  Jónsmessuganga á Varmalækjarmúla. Boðið í kaffi og meðlæti að veitingahúsinu í Fossatúni að lokinni göngu. Mæting á melunum fyrir ofan Fossatún.

Fimmtudaginn 8. júlí kl.19.30. Gengið með Botnsá og skoðaðir fossar (ekki Glymur)  Á bakaleið verður  komið við hjá Paradísarfossi í Brunná.

Mæting við bílastæðið við Stóra Botn.

Fimmtudaginn 22. júlí kl. 19.30. Fossaganga með Fitjaá í Skorradal,  Hvítserkur og fleiri fossar. Mæting við bæinn Fitja, þar verður sameinast í jeppa.

Fimmtudaginn 5. ágúst. Kl. 19.30.  Deildargil við Hraunsás í Hálsasveit. Gengið að Langafossi. Mæting ofan við heimreiðina að Hraunsási.

Fimmtudaginn 19. ágúst kl. 19.30. Gengið upp með Rauðsgili og fossarnir þar skoðaðir. Mæting við Rauðsgilsrétt.

Fimmtudaginn 2. september kl. 19.30. Gengið um Árdalsgil við Árdal. Mæting við Árdal.

Frekari upplýsingar um göngurnar er hægt að fá í síma

862 6361 og á Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það

 

Göngunefnd UMSB

 

 
Meistaramót Íslands 11-14 ára
Thursday, 03 June 2010
Meistaramót Íslands  11-14 ára í frjálsum mun fara fram á Kópavogsvelli dagana 12. og 13. júní n.k. Búið er að setja upp tímaseðil á mótaforriti Frjálsíþróttasambandsins www.mot.fri.is og er nú þegar mjögulegt að skrá keppendur í mótið.  Ennig er hæg að skrá sig í gegnum Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það
 
Mótið er haldið óvenju snemma í ár en það er gert í tilraunaskyni, venjulega hefur mótið verið í kringum Verslunarmannahelgi en eins og þekkt er þá er Unglingalandsmót þá helgi fyrir sama aldurshóp og því oft of stutt á milli þessara móta.

Reikna má með um 300 keppendum á mótið og verður því líf og fjör á Kópavogsvelli þessa daga.
 
 

Skráning er fyrir 8 Júní 




 
Stéttarfélag Vesturlands styrkir Unglingalandsmótið
Thursday, 03 June 2010

 

 

 

Stjórn Stéttarfélags Vesturlands ákvað að styrkja Unglingalandsmót UMFÍ sem haldið verður í Borgarnesi á komandi sumri.

Félagið setti sér þá stefnu fyrir tveimur árum að hafna öllum beiðnum um styrki til hina ýmsu málefna sem leitað væri eftir á landsvísu, með símasöfunum og öðrum beiðnum allan ársins hring, en taka þess í stað sjálfstæða ákvörðun að afloknum aðalfundi,  að leggja einu eða eftir atvikum fleiri góðum málum lið og þá með stærri upphæð.

Stjórn félagsins telur að Unglingalandsmótið sé mjög verðugt verkefni að styðja, þar sé um að ræða stóran félagslegan viðburð, sem hafi mikið forvarnargildi og hvetji til heilbrigðs lífernis.

  Ákveðið  var að leggja fram kr. 500.000.- til verkefnisins og mun styrkurinn koma bæði úr félags- og sjúkrasjóði félagsins.

  Það var síðan formaður Stéttarfélagsins, Signý Jóhannesdóttir og varaformaðurinn Sigurþór Óskar Ágústsson, sem afhentu UMFÍ og mótshaldara Unglingalandsmótsins styrkinn í Borgarnesi í gær.

  UMFÍ og mótshaldarar Unglingalandsmótsins þakka Stéttarfélagi Vesturlands þennan rausnarlega styrksem mun sannarlega koma sér vel.

 

Mynd: Björn Bjarki Þorsteinsson, Sigurþór Óskar Ágústsson, Helga Guðrún Guðjónsdóttir og Signý Jóhannesdóttir

 
<< Byrja < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>

Úrslit 21 - 24 af 98