|
Veitingasala og önnur sala |
|
Wednesday, 26 May 2010 |
Veitingasala og önnur sala 13. Unglingalandsmót UMFÍ verður haldið í Borgarnesium verslunarmannahelgina. Búast má við að um 10.000gestir komi til Borgarness þessa helgi.Unglingalandsmótsnefnd auglýsir eftir aðilum sem hafaáhuga á koma að veitingasölu á mótinu.Einnig óskum við eftir að þeir aðilar sem áhuga hafa að vera með annarskonar sölu á mótinu hafi samband.UMFÍ á nokkur 36 fermetra tjöld sem hægt er að fá leigðundir starfsemina. Umsóknir sendist á omar@umfi .is fyrir 1. júní 2010 Frekari upplýsingar veitir Ómar Bragi Stefánssongsm: 898 1095 |
|
|
Ungmennavika dagana 18. – 25. júlí 2010 |
|
Thursday, 20 May 2010 |
|
Ungmennafélag Íslands hefur um langt skeið verið aðili að NSU ( Nordisk samorganisation for ungdomsarbete ) og tekið þátt í fjölmörgum verkefnum með þeim. NSU stendur fyrir ungmennaviku dagana 18. – 25. júlí 2010 sem verður haldin í Suður Slesvig á landamærum Danmerkur og Þýskalands. SDU, Sydlesvig Danske Ungdomsforeninger, skipuleggur ungmennavikuna og heldur utan um alla framkvæmdina. Ef þú ert 15 – 25 ára, þá er þetta kannski eitthvað fyrir þig. Það er hægt að kíkja á www.sdu.de en þar má finna enn frekari upplýsingar um þetta allt. Kostnaður við Ungmennavikuna er um 100.000.- ískr. pr. einstakling ( innifalið flug og þátttaka ). Ungmennafélag Íslands hefur ákveðið að styrkja 6 einstaklinga til fararinnar um kr. 50.000.- hvern.  Áhugasamir skulu skila inn umsóknum til UMFÍ á netfangið
Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það
fyrir 28.maí 2010. Í umsókninni skal koma fram nafn umsækjanda, kennitala og heimilisfang. Einnig skal taka fram í hvaða héraðssambandi viðkomandi er í og áhugamál. Héraðssambönd hafa sum hver styrkt þátttakendur vegna þátttöku þeirra í ungmennaviku. Mynd: Frá Christianslyst í Suður Slesvig. |
|
|
Samráðsfundur í Borgarnesi |
|
Wednesday, 12 May 2010 |
|
Um helgina var haldinn Samráðsfundur Ungmennafélags Íslands í Borgarnesi. Stjórnarfundur UMFÍ var á föstudagskvöldinu og var síðan framhaldið til hádegis á laugardeginum. Helga Guðrún Guðjónsdóttir, formaður UMFÍ, hélt ávarp í upphafi fundarins og bauð fulltrúa velkomna. Fundurinn var vel sóttur en fulltrúar hérðassambandanna voru yfir 50 talsins. Farið var vítt og breitt um sviðið og voru umræður gagnlegar og fræðandi. Fjallað var um mál sem efst eru á baugi í hreyfingunni og spunnust um það skemmtilegar umræður. Landsfulltrúar UMF, Guðrún Snorradóttir, Sigurður Guðmundsson og Ómar Bragi Stefánsson héldu kynningu á sínum verkefnum. Í lok fundarins var skoðunarferð um mótsvæðið í Borgarnesi en undirbúningur fyrir mótið er í fullum gangi.   |
|
|
|
<< Byrja < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>
|
| Úrslit 25 - 28 af 98 |