|
88. þing UMSB var haldið að Logalandi í Reykholtsdal 28. mars sl í blíðskaparveðri. Á þinginu var samþykkt að veita Ungmenna- og íþróttafélagi Hvalfjarðarsveitar aðild að UMSB. Félagið varð til við sameiningu eftirfarandi ungmennafélaga; Þröstur, Haukar og Vísir. Þingforseti var Pálmi Ingólfsson og stýrði hann þinginu vel og með miklum krafti. Á þinginu voru starfandi þrjár nefndir: fjárhagsnefnd, allsherjarnefnd og íþróttanefnd og höfðu þær níu tilllögur til umfjöllunar. Voru umræður miklar og heitar á köflum í nefndum, einkum fjárhagsnefnd. Sambandsstjóri var endurkjörinn Friðrik Aspelund, varasambandsstjóri Rósa Marinósdóttir, gjaldkeri Elfa Jónmundsdóttir og varagjaldkeri Guðmundur Sigurðsson. Á þinginu var Guðmundur Sigurðsson hylltur af þingfulltrúum fyrir mikil og góð störf í þágu UMSB. Ómar Bragi Stefánsson landsfulltrúi UMFÍ og framkvæmdastjóri ULM fór yfir undirbúning og framkvæmd á Unglingalandsmótinu í Borgarnesi með þingfulltrúum. Gestir fundarins voru Helga G. Guðjónsdóttir formaður UMFÍ, Björg Jakobsdóttir varaformaður UMFÍ, Garðar Svansson stjórnarmaður UMFÍ og í unglingalandsmótsnefnd í Borgarnesi, Sigurður Guðmundsson landsfulltrúi UMFÍ, Ómar Bragi Stefánsson landsfulltrúi og framkvæmdastjóri ULM, Líney Halldórsdóttir framkvæmdastjóri ÍSÍ og Friðrik Einarsson framkvæmdastjórn ÍSÍ. Frá Borgarbyggð komu Indriði Jósafatsson og Páll S. Brynjarsson. Einning sat unglingalandsmótsnefd þingið. Helga G. Guðjónsdóttir formaður UMFÍ og Björg Jakobsdóttir varaformaður veittu Sólrúnu Höllu Bjarnadóttur starfsmerki UMFÍ og Friðrik Einarsson og Líney Halldórsdóttir veittu Írisi Grönfeld silfurmerki ÍSÍ. |