Skip to content
Narrow screen resolution Wide screen resolution Auto adjust screen size Increase font size Decrease font size Default font size blue color

Ungmennasamband Borgarfjarðar

UMFÍ óskar eftir að ráða verkefnastjóra
Tuesday, 09 March 2010

 

 UNGMENNAFÉLAG ÍSLANDS Ræktun lýðs og lands

Ungmennafélag Íslands óskar eftir að ráða verkefnastjóra til að vinna að undirbúningi og framkvæmd 13. Unglingalandsmóts UMFÍ sem haldið verður í Borgarnesi 30. júlí-1. ágúst 2010.

Starfið er krefjandi en jafnframt fjölbreytt og líflegt. Verkefnastjóri þarf að geta sýnt sjálfstæð vinnubrögð og hafa góða framkomu. Þekking á starfi ungmennafélagshreyfingarinnar er góður kostur en ekki nauðsynleg.

Umsóknarfrestur er til 15. mars. Skrifleg umsókn með upplýsingum um fyrri störf, menntun og reynslu skal skila til Þjónustumiðstöðvar UMFÍ, Laugavegi 170, 105 Reykjavík fyrir 15. mars 2010. Umsóknir má einnig senda á tölvupóst á Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það fyrir sama tíma.Nánari upplýsingar um starfið eru veittar á Þjónustumiðstöð UMFÍ í síma 568-2929

 

 

 
Íþróttahátíð UMSB – Trausti er íþróttamaður Borgarfjarðar
Tuesday, 02 March 2010

Síðastliðinn laugardag var íþróttahátíð UMSB haldin í Borgarnesi, en keppnin er fyrir 16 ár og yngri. Fyrir hádegi var keppt í sundi og eftir hádegi í frjálsum íþróttum. Þátttaka var mjög góð, eða tæplega 100 keppendur. Náðist góður árangur í mörgum greinum og ljóst að á starfssvæði UMSB er efnilegur hópur íþróttafólks að koma upp.  Á íþróttahátíðinni hefur verið hefð í nokkur ár að eitt aðildarfélag ÍSÍ kynni starfsemi sína og voru það félagar frá Handknattleikssambandi Íslands sem mættu að þessu sinni.  Loks voru ýmis verðlaun veitt fyrir góðan árangur í sundi og frjálsum íþróttum. Íþróttamaður Borgarfjarðar varð Trausti Eiríksson körfuboltamaður, en hann hlaut einnig titilinn Íþróttamaður Borgarbyggðar fyrir skömmu. Meðfylgjandi mynd er af níu af tíu efstu í kjöri íþróttamanns Borgarfjarðar 2009.

 

 

 
Fyrsti fundur Unglingalandsmótsnefndar
Tuesday, 23 February 2010
Fyrsti fundur Unglingalandsmótsnefndar í Borgarnesi var haldinn í gær en 13. Unglingalandsmót UMFÍ verður haldið þar um verslunarmannahelgina í sumar. Á fundinum voru fyrstu skrefin í undirbúningi fyrir mótið rædd. Næsti fundur nefndarinnar verður haldinn 18. mars.

 

Unglingalandsmótsnefndin er skipuð eftirtöldum einstaklingum. Björn Bjarki Þorsteinsson, formaður, Veronika Sigurvinsdóttir, Guðmundur Sigurðsson, Ásdís Helga Bjarnadóttir, Álfheiður Marinósdóttir, Friðrik Aspelund, Sæmundur Runólfsson, Helga Guðrún Guðjónsdóttir og Garðar Svansson. Framkvæmdastjóri mótsins er Ómar Bragi Stefánsson.

 

Glæsileg íþróttamannavirki eru til staðar í Borgarnesi. Íþróttaleikvangurinn er vel staðsettur og við hlið hans eru knattspyrnuvellir, sudlaug og íþróttahús. Önnur íþróttamannvirki eru í bænum eða næsta nágrenni. Tjaldstæði keppenda verður rétt utan við bæinn en boðið verður upp á góðar samgöngur að keppnissvæðunum.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Frétt er tekið af síðu UMFÍ 

 
<< Byrja < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>

Úrslit 37 - 40 af 98